Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu vefs

Forsíða

21. Ágúst 2019

GJÖF TIL SKÁLATÚNS.

 

GJÖF TIL SKÁLATÚNS.

FRÁ GUÐLAUGI GÍSLASYNI.

Guðlaugur Gíslason afhenti í dag Skálatúni höfðinglegja gjöf að upphæð einni milljón króna í tilefni af 90 ára afmæli Guðlaugs. Guðlaugur segir í gjafabréfi að gjöfin væri þakklætilsvottur fyrir fóstur Gísla Steins sonar Guðlaugs sem, eins og segir í gjafabréfinu, hefur átt heimili í Skáltúni í 39 ár og notið þar þjónustu og vináttu þess frábæra starfsfólks sem Skálatún hefur á að skipa öll þessi ár og leitt hefur til þess þroska sem Gísli Steinn hefur náð.

Í gjafabréfinu óskar Guðlaugur Skálatúni allra heilla í framtíðinni, og vonar að Skálatún verði áfram sá bakhjarl öryrkjum og fötluðu fólki sem verið hefur frá upphafi til þessa dags.

Fyrir hönd Skálatúns er Guðlaugi þakkaður sá mikli hlýhugur og velvild sem hann sýnir Skálatúni með þessari gjöf til Skálatúns.  Gjöfin er kærkomin og mun verða varið til verkefna sem koma sem flestum íbúum Skálatúns til góða.

Helgi Hróðmarsson, framvæmdastjóri

9. Nóvember 2018

Jólamarkaður 2018

Jólamarkaður 2018

22. Ágúst 2018

UPPSETNING SKJALDAR Í SKÁLATÚNI.

 

Skjöldur 

UPPSETNING SKJALDAR Í SKÁLATÚNI TIL MINNINGAR UM

JÓHANN FR. KRISTJÁNSSON,

BYGGINGAMEISTARA OG ARKITEKT.

Jóhann Fr. Kristjánsson, byggingameistari og arkitekt teiknaði og byggði íbúðarhús í Skálatúni árið 1947 (nú Skálahlíð 7 sem hýsir skrifstofur Skálatúns).  Jóhann teiknaði húsið í burstastíl, upphaflega með torfþaki. Og bjó hann síðan í Skálatúni til dauðadags árið 1952.  Það var síðan Stórstúka Íslands sem keypti jörðina Skálatún árið 1953 með það fyrir augum að stofna þar barnaheimili fyrir börn með þroskaskerðingu.   En þá var húsið sem Jóhann byggði eina íbúðarhúsið á lóðinni  30. janúar 1954 fluttu síðan fyrstu börnin í Skálatún á Barnaheimili Templara við Skálatún sem var upphaflega nafnið (nú Skálatún).

Afkomendur Jóhanns létu gera minningarskjöld um Jóhann  sem komið var fyrir við inngang að skrifstofum Skálatúns, Skálahlíð 7. Hússins sem Jóhann teiknaði og byggði. Skjöldurinn var afhjúpaður þriðjudaginn 21. ágúst 2018 að viðstöddum ættingjum og afkomendum Jóhanns auk framkvæmdastjóra og sviðstjóra Skálatúns.  Ættingjarnir komu jafnframt færandi hendi og gáfu kr. 200.000 til starfs Skálatúns auk gamalla mynda af Skálatúni og spila sem nýtast munu í starfi Skálatúns. Fyrir hönd Skálatúns eru afkomendum Jóhanns þakkaður sá hlýhugur sem þau sýna Skálatúni með uppsetningu skjaldarins sem allir sem heimsækja Skálatún geta hér eftir skoðað.  Enda ánægjulegt að fólk viti almennt um tilurð þessa merka húss á lóð Sálatúns.  Þá er aðstandendum einnig þakkaðar ofangreindar  gjafir til Skálatúns sem eru kærkomnar og munu koma að góðum notum. 

Jóhann áorkaði miklu í störfum sínum. Hann var ráðinn byggingar- ráðunautur ríkisins og hóf störf við húsbyggingar í sveitum og leiðbeindi bændum og húsbyggjendum við húsagerð úr steinsteypu. Hann var m.a. forstöðumaður Teiknistofu landbúnarðarins. En hann gerði meira en að hanna hús. Árið 1938 hannaði hann Sóló-miðstövarvélina sem var með bökunarofni, nýjum reykgangi og vatnskatli sem gat hitað upp allt að fjörgur meðalstór herbergi en notaði samt óvenju lítið eldsneyti.  Jóhann teiknaði fjöldamörg hús víða um land, m.a. íbúðarhús, útihús og skólahús. 

f.h. Skálatúns

Helgi Hróðmarsson, framkvæmdastjóri



Toppmynd


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré